Borgar sig fyrir eldri borgara að geyma spariféð sitt undir koddanum?

Þessi fyrirsögn þykir kannski galin, en þegar ég horfi upp á það hjá móður minni eftir opnun hins opinbera á bankainnistæðum landsmanna verða fyrir svo mikilli skerðingu á lífeyri að það er ekki nokkrum manni bjóðandi upp á það. Ég gæti skilið þetta ef hún væri einhver stóreigna manneskja, en svo er ekki. Hún á inn á bók aura sem nemur álíka upphæð og ca. 1 og 1/2 jarðarför. Þennan pening er hún búin að geyma, meðal annars til að getað haldið íbúðinni við, en hún hefur ekki verið máluð í 10 ár. Salernið hjá henni ónýtt og þarf að skipta því út. Þar sem hún er mikill sjúklingur, þyrfti að taka út baðkerið, sem reyndar er mjög gamalt og setja sturtu í staðinn. Nei, þessi gjörningur þýddi það að hún þarf að endurgreiða á þriðja hundrað þúsund í lífeyri og er nú gert að lifa á 81 þúsund krónum á mánuði. Fyrir þetta á hún að kaupa þau lyf sem hún þarf að nota, borga mat og annað viðurværi, greiða heimaþjónustuna (sem í hennar hverfi hefur verið til háborinnar skammar), viðhalda íbúðinni sem og annað sem þarf að greiða. Allsstaðar er gengið á rétt þeirra sem minnst mega sín. Þetta er til háborinnar skammar. Móðir mín er ein af þeim  einstaklingum sem þeger eru búnir að leggja til þjóðarbúsins með sinni vinnu í gegnum lífið. Hún býr nú ekki í stóru húsnæði hún móðir mín, aðeins lítilli tveggja herbergja íbúð í Breiðholti svo ekki er ég heldur að tala um eignir uppá tugi milljóna í fasteignum. Það er nú þannig að fólk vill helst eiga fyrir sinni eigin jarðarför og hefur það verið í okkur landanum alla tíð. En þarna er hreinlega verið að eyðileggja þá fyrirhyggju sem fólk hefur í þeim efnum. Á endalaust að niðurlægja aldraða og öryrkja? Ég bara spyr!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

mikið sammála þessu og hefir skrifað mikið um þetta ,að eig fé i banka er neikvætt og svo er fjarmangsskattur 18% af þessi litlu vöxtum/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 11.9.2010 kl. 13:52

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæl Sigurlaug. Ég hef líka hent fram þessari spurningu hér á blogginu en ekki verið með sérstaka færslu um það. Málið er að það myndi borga sig ef hægt væri að treysta gjaldmiðlinum en það er ekki svo. Ef allir gerðu þetta ( tækju út peninga sína ) þá fyrst færi að syrta að og sennilega myndi þá krónan sökkva eins og steinn þannig að það yrði veruleg hjöðnun undir koddanum  þannig að þetta er áhætta á báða bóga. Skerðing á bótum er það sem er verst í þessu tilfelli.

Annað mál varstu ekki hjá Eflingu áður ??? kveðja Kolla 

Kolbrún Stefánsdóttir, 11.9.2010 kl. 14:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurlaug B. Gröndal
Sigurlaug B. Gröndal

Hef einlægan áhuga á öllu sem snertir manneskjuna,lífið og tilveruna. Ég er verkefnastjóri hjá Mími-símenntun ehf. Er hamingjusamlega gift Rafni Gíslasyni, húsasmiði. Við eigum 4 börn og 7 barnabörn og einn hund. 

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...palli
  • ...jol2008_030
  • ...jol2008_016
  • ...jol2008_012
  • Sumar2008 068

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband