Nú drynur í berginu.......

Í dag var bjart í Þorlákshöfn, jafnvel sólin braust fram og var það kærkomin sjón eftir átök í veðrinu undanfarna daga. Á svona dögum er gott að fara með  Tinnu mína í gryfjuna til að hlaupa og sleppa af sér beislinu. Við fórum, ég og hundurinn minn hún Tinna í gryfjuna góðu, sem staðsett er "út á bergi" eins og sagt er hér í bænum. Til nánari skýringa þá er það rétt niður við sjóinn þar sem hesthúsin eru og gömul fiskeldisstöð. Þar við ströndina er hamrabelti mikið og brimið þar verður ógurlegt. Þarna hafa farist menn og einnig lítill drengur, er mér sagt. Sjórinn sogar að sér með ógnarkrafti. Í þeim veðraham sem hefur verið og þar sem hásjávað er hefur brimið þessa daga verið mikið og stórbrotið og brimið sést skella upp eftir berginu tugi metra upp í loftið héðan frá götunni, þar sem ég bý. Í gryfjunni í dag voru miklar drunur. Það var eins og heljar tröllkarl berði bergið með einhverju ógnarstórum hamri svo glumdi í. Það er titringur í loftinu á slíkum dögum. Mikilfenglegar drunur berast hingað heim að húsi. Fyrst í stað þegar við fluttum hingað, héldum við að margar stórvirkar vinnuvélar væru einhversstaðar að störfum í grenndinni. Svo reyndist ekki vera. Þetta var brimið. Í dag var það stórbrotið og þar sem við Tinna nutum útivistarinnar í gryfjunni við hlaup og göngu, þá drundi í berginu með djúpum bassadrunum. Það var mikilfenglegt.  Já, nú drynur í berginu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Þetta er frábærlega velskrifuð færsla hjá þér.

Steingerður Steinarsdóttir, 17.12.2007 kl. 16:57

2 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Þakka þér fyrir Steinka mín. Ég var svona að reyna að koma þessari upplifun í orð eins vel og ég upplifi það. Þetta eru stórfengleg náttúruöfl sem þarna eru að verki og að heyra þessar miklu drunur og upplifa kraftinn frá hafinu er ólýsanlegt.

Sigurlaug B. Gröndal, 18.12.2007 kl. 09:29

3 Smámynd: Björg Árnadóttir

Mér finnst sjórinn yndislegur og sérstaklega ef ég kemst í tæri við alvöru brim. Ég þyrfti greinilega að renna til þín við tækifæri!

Björg Árnadóttir, 18.12.2007 kl. 16:16

4 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Endielga gerðu það Björg. Þú finnur heimilisfangið í skránni. Hef sama síma og í den. Vertu ávallt velkomin.

Sigurlaug B. Gröndal, 18.12.2007 kl. 17:16

5 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Gleðileg jól og takk fyrir skemmtilegt bloggár :)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 22.12.2007 kl. 01:26

6 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Gleðileg jól og þakka þér alla skemmtunina hér á blogginu á liðnu ári. Megi næsta ár vera þér jafnfarsælt og vonandi hittumst við með hundana okkar einhvern tíma.

Steingerður Steinarsdóttir, 23.12.2007 kl. 10:15

7 Smámynd: Valgerður Halldórsdóttir

Óskar þér og þinni fjölskyldu Gleðilegra jóla - nú er bara að sjást á nýju ári

Valgerður Halldórsdóttir, 23.12.2007 kl. 12:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurlaug B. Gröndal
Sigurlaug B. Gröndal

Hef einlægan áhuga á öllu sem snertir manneskjuna,lífið og tilveruna. Ég er verkefnastjóri hjá Mími-símenntun ehf. Er hamingjusamlega gift Rafni Gíslasyni, húsasmiði. Við eigum 4 börn og 7 barnabörn og einn hund. 

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...palli
  • ...jol2008_030
  • ...jol2008_016
  • ...jol2008_012
  • Sumar2008 068

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband