Heppnir að sleppa!

Guðs mildi að þeir fóru ekki  af stað niður hlíðina. Á svona vinnustað sem þessum er hæglega hægt að renna af stað við svona aðstæður.  Mikið grjóthrun var í hlíðum fjallsins og björg, mörg tonn af þyngd þeyttust niður hlíðarnar.  Ekki væri ég róleg við vinnu mína á svona stað við þessar aðstæður. Blush
mbl.is Hvergi banginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ég flýtti mér hingað á síðuna þína að gá að fréttum, mundi skyndilega hvar þú býrð. Gott að allt slapp hjá þér, nóg er nú samt þarna í nágrenninu. Hundar hjá mér gerðu enga athugasemd en við erum langt frá. Skjálftinn fannst vel hjá mér og stóð lengi yfir, með miklum hvin. Þeir virtust ekki átta sig samt.

Kær kveðja og vonandi verður þetta allt til friðs héðan í frá.

Ragnheiður , 30.5.2008 kl. 21:17

2 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Takk Ragga mín fyrir góðar kveðjur. Já, við sluppum með skrekkinn sem betur fer.  Já, vonandi verður allt til friðs. Það eru margir með mjög mikið tjón hér ofar í sveitum og víst þónokkuð um að fólk sé ekki með innbústryggingu. Það er skelfilegt ef svo er.

Sigurlaug B. Gröndal, 30.5.2008 kl. 21:46

3 Smámynd: Ragnheiður

Já það er áreiðanlega víða ekki nægar tryggingar og það er sorglegt í svona viðburðum. Það er áreiðanlega mest fólkið sem minnst hefur milli handanna og erfiðast á með að kaupa sér nýtt innbú

Ragnheiður , 30.5.2008 kl. 21:50

4 Smámynd: Björg Árnadóttir

Já, ég vildi ekki vinna þarna á venjulegum degi, hvað þá í þessum jarðhræringum. Gott að heyra að þið hafið sloppið með skrekkinn sem er mesta furða m.v. hvað við hristumst duglega alla leið hér í Vogunum.

Björg Árnadóttir, 30.5.2008 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurlaug B. Gröndal
Sigurlaug B. Gröndal

Hef einlægan áhuga á öllu sem snertir manneskjuna,lífið og tilveruna. Ég er verkefnastjóri hjá Mími-símenntun ehf. Er hamingjusamlega gift Rafni Gíslasyni, húsasmiði. Við eigum 4 börn og 7 barnabörn og einn hund. 

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...palli
  • ...jol2008_030
  • ...jol2008_016
  • ...jol2008_012
  • Sumar2008 068

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband