Skammarleg aðför að réttindum nýbura!

Einhvern veginn hefur umræðan alltaf snúist um rétt foreldranna til fæðingarorlofs, sem er gott og gilt svo langt sem það nær. Hvað með rétt nýborinna barna til samvista við foreldra sína fyrstu mánuðina í lífi þeirra?

Áður en umræðan um skerðingu á fæðingarorlofi til feðra kom til umræðu var fyrir ákveðin mismunun á milli réttinda barnanna til samvista við foreldri fyrstu mánuðina. Barn sem átti foreldra sem annaðhvort voru í sambúð eða hjónabandi átti rétt á allt að 9 mánuðum í samvistum við foreldra sína meðan barn einstæðrar móður átti aðeins rétt á 6 mánuðum í samvistum við foreldri. Þurfti því fyrr að fara í daggæslu en ella. 

Sú tillaga nú að skerða rétt einstæðra mæðra til fæðingarorlofs um 1 mánuð eða fresta töku 1 mánaðar er til háborinnar skammar. Þarna er að mínu mati gróflega gengið á rétt  barnsins og sömuleiðis móðurinnar sem hefur mun meiri þörf á að taka þessa mánuði alla, þar sem litlar sem engar líkur eru á því að faðirinn komi til með að annast barnið eða nýta sinn rétt til fæðingarorlofs. 

Ég hvet Félagsmálaráðuneytið að hverfa frá þessum hugmyndum. Þurfi að velja á milli tel ég betra að skerða rétt föðurins en einstæðra mæðra. 

Mér finnst staðan hreinlega orðin þannig að það eigi að skera niður allsstaðar og verið sé að færa krónurnar úr hægri vasanum í vinstri þar sem þær gætu kannski komið sér betur. Er þetta samkvæmt tilskipun frá AGS (Alþjóða gjaldeyrissjóðnum) ? Er svo saumað að okkur að þeir sem minnst mega sín, yngstu þjóðfélagsþegnarnir, þurfi að líða skerðingu að þessu tagi? Þá er orðin verulega aum staða okkar Íslendinga hvað varðar velferð og mannréttindi. 


mbl.is Fæðingarorlof með því stysta á Norðurlöndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Mikið er ég sammála þér. Þú kemur með athyglisverðan punkt þarna sem er í rauninni afar augljós þegar þú segir það ''upphátt''. Þetta hlýtur auðvitað að eiga að snúast um rétt barnsins.

Jóna Á. Gísladóttir, 30.11.2009 kl. 10:19

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála ykkur.  Það er reyndar orðið skammaryrði um þessa ríkisstjórn að hún skuli kalla sig velferðarstjórn.  Önnur eins blóðtaka á öllum sviðum hefur ekki sést lengi.  Og það þýðir ekkert að tala um að við höfum ekki efni á... meðan ráðherrar bruðla ennþá með einkabílstjóra, og flengjast út um allan heim á þessum tímum netsins, forsetinn að fara um allar trissur.  Þetta er bara grófleg mismunun á versta veg. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.11.2009 kl. 13:40

3 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Mikið er að einhver með viti skrifi um þetta mál, Margrét.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 1.12.2009 kl. 01:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurlaug B. Gröndal
Sigurlaug B. Gröndal

Hef einlægan áhuga á öllu sem snertir manneskjuna,lífið og tilveruna. Ég er verkefnastjóri hjá Mími-símenntun ehf. Er hamingjusamlega gift Rafni Gíslasyni, húsasmiði. Við eigum 4 börn og 7 barnabörn og einn hund. 

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...palli
  • ...jol2008_030
  • ...jol2008_016
  • ...jol2008_012
  • Sumar2008 068

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 5636

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband