Samræmdur réttur fyrir alla

Það er löngu orðið tímabært að samræma rétta launafólks í landinu. Opinberir starfsmenn hafa verið með mun betri orlofsrétt, lífeyrissrétt í kjarasamnningum en launafólk á almennum vinnumarkaði. Það er hinsvegar mikil tilhneiging í þá áttina þegar þessi umræða hefur komið upp á borðið að færa réttinn niður að almenna markaðnum. Það stóð til að rýra rétt opinberra starfsmanna með breytingu og jafnvel niðurfellingu laga um opinbera starfsmenn. Eitt er það sem hefur verið þyrnir í augum margra launagreiðenda er hið svokallaða áminningarferli vegna uppsagna. Í opinbera geiranum þarfa að tilgreina ástæðu uppsagnar og þarf að áminna starfsmann ef um slíkt er að ræða áður en ákvörðun um uppsögn er tekin. Starfsmaðurinn hefur þann rétt sem stjórnsýslulög kveða á um þ.e. andmælarétt og rétt til að bæta sig. Hann hefur sem sagt eitthvað um málið að segja. Hinsvegar á almennum markaði getur launagreiðandi sagt upp starfsmanni án gildrar ástæðu og hefur það gerst í mörgum tilvikum að um hreina geðþóttaákvörðun hafi legið að  baki uppsögninni. Eins og kemur fram í fréttinni eru opinberir starfsmenn með að hámarki 30 daga orlofsrétt en almennur markaður að hámarki 28 daga. Eitt er það sem verður einnig að skoðast í þessu er að orlof opinberra starfsmanna byggist á lífaldri í flestum tilvikum þ.e. að sá sem hefur náð 30 ára  lífaldri á rétt á 27 daga orlofi og sá sem hefur náð 38 ára lífaldri á rétt á 30 dögum í orlofi óháð starfstíma. Á almennum markaði þarftu að vera búinn að vinna hjá sama atvinnurekanda í 10 ár til að öðlast 28 daga í orlofi. Þarna liggur líka gífurlegur réttindamismunur.  Sami réttur á að gilda á vinnumarkaði fyrir alla launþega.


mbl.is Vilja semja um aukið frí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Sammála þessu og ég held að gott væri ef hægt yrði að tryggja rétt fólks betur í einkageiranum. Ég þekki fólk sem sagt var upp gersamlega að ástæðulausu og atvinnurekandinn neitaði að borga uppsagnarfrest. Í einu tilfelli gekk atvinnurekandinn svo langt að auglýsa starf viðkomandi starfsmanns án þess að hafa fyrir því að segja honum. Auglýsingin var nafnlaus en starfsmaðurinn komst að því fyrir tilviljun að um hans fyrirtæki var að ræða. Vinnuveitandinn gaf þá skýringu að hann hefði viljað sjá hverjir sæktu um áður en hann ræki þennan starfsmann sinn. Virðingarleysið gagnvart fólki er stundum algjört.

Steingerður Steinarsdóttir, 9.8.2007 kl. 14:54

2 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Já, Steinka, réttur launþega á almennum vinnumarkaði er grátlega rýr. Óbilgyrni  margra launagreiðenda er ótrúleg.  Dæmið sem þú nefnir er eitt af mörgum um slíkt.  Á mínum 13 ára starfsferli hjá einu stærstastéttarfélagi landsins voru dæmin sem komu upp á borðið hjá starfsmönnum þess mörg svo ótrúleg að þau voru lyginni líkust.  Það á að vera einn réttur fyrir alla hvar sem þeir eru og hvaðan sem þeir koma.  Erlent vinnuafl hefur einnig orðið fyrir barðinu á óprúttnum rekstraraðilum sem nýta sér kunnáttuleysi launþeganna og tungumálaörðugleika. 

Sigurlaug B. Gröndal, 9.8.2007 kl. 21:48

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk fyrir athyglisverðan pistil og velkomin í bloggvinahópinn minn.

Ásdís Sigurðardóttir, 16.8.2007 kl. 14:27

4 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Þakka þér fyrir Ásdís, sömuleiðis vertu velkomin í hópnn hjá mér. Það er alltaf gaman að fá nýja bloggvinin og það verður gaman að lesa bloggið þitt.  

Sigurlaug B. Gröndal, 16.8.2007 kl. 22:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurlaug B. Gröndal
Sigurlaug B. Gröndal

Hef einlægan áhuga á öllu sem snertir manneskjuna,lífið og tilveruna. Ég er verkefnastjóri hjá Mími-símenntun ehf. Er hamingjusamlega gift Rafni Gíslasyni, húsasmiði. Við eigum 4 börn og 7 barnabörn og einn hund. 

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...palli
  • ...jol2008_030
  • ...jol2008_016
  • ...jol2008_012
  • Sumar2008 068

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband