Áramótahugleiđing

Áramótin í mínum huga eru alltaf sérstök stund.  Fyrir mér er miđnćttiđ eins og ađ stíga yfir strik og ég yfirgef gamla áriđ og stend viđ endann á löngum, auđum vegi, nýja árinu. Nýja áriđ er eins og óskrifađ hvítt blađ fyrir framan mig og allt svo tćrt og nýtt og ómengađ. Mér finnst ţetta spennandi tímamót og hvađ nćsta ár ber í skauti sér veit enginn. Ţetta er andartak tćkifćranna, andartak vćntinga, andartak nýs tíma, andartak hins ókomna. Áriđ er sporöskjulaga hringur, sem er mjóstur ţar sem ágúst og september mćtast. Flatur stuttur breiđari endinn er vikan frá Ţorláksmessu ađ miđnćtti 31. desember, ţá verđa skil og nýr hringur hefst, ljós og fagur, nýtt ár hefst. Ţannig hefur ţetta veriđ frá ţví ég var barn. Ţessi hringur sem reis og hneig eftir árstíđum, sporöskjulaga hringrás tímans. Ekki veit ég hvernig ađrir skynja áriđ eđa áramótin. Kannski eitthvađ ţessu líkt eđa međ allt öđru móti.  Nú í kvöld lýkur enn einum hringnum og nýr tekur viđ kl. 24:00.  Ég vil óska vinum og vandamönnum, öllum bloggvinum mínum, öllum sem hafa kíkt á bloggiđ mitt, öllum landsmönnum gleđilegs árs og friđar. Megi nýja áriđ fćra öllum góđa heilsu, gleđi, gćfu, ný tćkifćri, kjark og ţor til ađ takast á viđ ný tćkifćri í lífinu. Lifiđ heil.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingerđur Steinarsdóttir

Ég skynja áramótin líka sem tímamót en ţessi sporöskjulaga hringur finnst mér alveg frábćr og nýstárlegur. Ég kannast ekki viđ ađ setja tímann svona myndrćnt upp fyrir mér. Gleđilegt ár Siguglaug mín og megi nýja áriđ reynast ţér farsćlt í alla stađi.

Steingerđur Steinarsdóttir, 2.1.2008 kl. 12:37

2 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Takk fyrir góđa kveđju, Steinka mín. Já, ţađ er svo skrítiđ hvernig ţetta hefur birst mér sem hringur. Ég hef nú ekki haft orđ á ţessu ţannig, en mér fannst ég ţurfa ađ nefna ţetta. Ég meira ađ segja horfi á hringinn "hinumegin" ţegar ég lít til baka eđa horfi fram á viđ, hvar sem ég er stödd í hringnum.  Gleđilegt ár, Steinka mín og megi áriđ fćra ţér gćfu, gleđi og góđa heilsu.

Sigurlaug B. Gröndal, 2.1.2008 kl. 13:44

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Sigurlaug B. Gröndal
Sigurlaug B. Gröndal

Hef einlægan áhuga á öllu sem snertir manneskjuna,lífið og tilveruna. Ég er verkefnastjóri hjá Mími-símenntun ehf. Er hamingjusamlega gift Rafni Gíslasyni, húsasmiði. Við eigum 4 börn og 7 barnabörn og einn hund. 

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...palli
  • ...jol2008_030
  • ...jol2008_016
  • ...jol2008_012
  • Sumar2008 068

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband