Stóru hryllingsbúðirnar

Ég verð seint talin vera búðarápari því það er eitt af því leiðinlegasta sem ég geri er að fara í búðir, einkum stórar búðir, sem ég kalla "hryllingsbúðir"Alien.  Hvað á ég við með því?  Jú, þessi gímöld sem þú neyðist til að rápa fleiri tugi eða hundruð metra til að ná í einn hlut og þær keyra þreytt starsfólk, alltof fátt til að kreista krónurnar úr landanum, alla daga vikunnar. Fá hann til að kaupa meira. Ein af þessum verslunum er IKEA. Ég hef bara enga löngun til að fara í þá verslun eftir að hún flutti og stækkaði. Nýja Hagkaupsverslunin í Holtagörðum er ein þessara verslana. Kýs frekar að fara í Skeifuna eða í versta falli Kringluna. Svo er það Toys"R"Us. Landinn tapaði sér þegar hún opnaði. Heilagt leikfangastríð hófst milli verslana fyrir jólin. Ég hafði ekki lyst á að fara þangað,  þar sem þessi verslanakeðja hefur haft það orð á sér að stunda það að brjóta á launþegum víða um lönd þar sem hún starfar. Setur leiðinlegan stimpil á hana og svo stendur Leikbær alltaf fyrir sínuLoL. Maður fer að sakna sárlega kaupmannsins á horninu. Lifið heil.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Heyr heyr Silla mín þú greinilega hefur fínar skoðanir, þó ÞÚ búir vitlausu megin við fljótið.

Eiríkur Harðarson, 9.1.2008 kl. 02:53

2 Smámynd: Björg Árnadóttir

Innilega sammála Silla. Ég veit ekkert leiðinlegra en að þvælast um í búðum. Verst að maður neyðist öðru hvoru í þær til að ná í helstu nauðsynjar. En þá styrkist maður alltaf enn meir í andúð sinni á þeim.  Það er t.d. stórmál að uppgötva á kassanum að maður gleymdi smjörinu, mjólkinni eða einhverju álíka. Ekki séns að stökkva eftir því. Kaupmaðurinn á horninu stóð alltaf fyrir sínu.

Já, og gleðilegt ár Silla mín, vona að þú og þínir eigið gott ár framundan.

Björg Árnadóttir, 9.1.2008 kl. 20:21

3 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Sammála. Mér finnst með ólíkindum hvað æsingurinn í kringum svona verslanir getur orðið mikill. Minni bara á þegar Elkó opnaði og Max. Er það alveg ótakmarkað sem fólk getur bætt við sig af rafmagnstækjum? Sumir virðast líka eyða helgunum í stórmörkuðum og finnast það gaman. Það finnst mér sorglegt.

Steingerður Steinarsdóttir, 14.1.2008 kl. 09:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurlaug B. Gröndal
Sigurlaug B. Gröndal

Hef einlægan áhuga á öllu sem snertir manneskjuna,lífið og tilveruna. Ég er verkefnastjóri hjá Mími-símenntun ehf. Er hamingjusamlega gift Rafni Gíslasyni, húsasmiði. Við eigum 4 börn og 7 barnabörn og einn hund. 

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...palli
  • ...jol2008_030
  • ...jol2008_016
  • ...jol2008_012
  • Sumar2008 068

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband