Ekki rugla saman foreldraorlofi og fæðingarorlofi.

Það er ranglega farið með staðreyndir í fyrirsögn þessarar fréttar. Hið rétta er að íslenskir feður setja met í töku fæðingarorlofs feðra. Mjög fáir foreldrar taka foreldraorlof sem er annar réttur en fæðingarorlof og tók gildi með sömu lögum 1. janúar árið 2000. Meira að segja er það svo að mjög fáir vita af þessum rétti. Þetta ákvæði laganna skapa foreldrum rétt til að taka leyfi frá störfum í allt að 13 vikur vegna barna upp að 8 ára aldri. Hins vegar er því háttað með þetta leyfi að það er ekki launað,  hvorki frá vinnuveitanda né Fæðingarorlofssjóði sem gerir það að verkum að foreldrar eru ekki að nýta sér þennan rétt. Þeir þurfa því að vera fjárhagslega vel stæðir til að geta gert það. Þó hafa einstaka foreldrar, sem getað hafa nýtt sér þetta þegar barn er að hefja nám í grunnskóla og þarf aðlögunar við. Mjög góðar upplýsingar um "Foreldra-og fæðingarorlof" er að fá m.a. á vef ASÍ á hlekk hægra megin á forsíðu vefsins www.asi.is ,

einnig er hægt að finna góðar upplýsingar á vefnum  www.island.is

Skoðið endilega þessar síður og kynnið ykkur muninn á þessu tvennu - Foreldraorlofi og fæðingarorlofi. 

 


mbl.is Íslenskir feður setja met í töku foreldraorlofs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björg Árnadóttir

Ja hérna! Ekki hafði ég hugmynd um tilvist þessa foreldraorlofs!! Þú ert sannkallaður hafsjór fróðleiks í þessum efnum! Takk fyrir upplýsingarnar þrátt fyrir að ég muni nú ekki koma til með að nota mér þennan rétt

Björg Árnadóttir, 9.10.2008 kl. 22:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurlaug B. Gröndal
Sigurlaug B. Gröndal

Hef einlægan áhuga á öllu sem snertir manneskjuna,lífið og tilveruna. Ég er verkefnastjóri hjá Mími-símenntun ehf. Er hamingjusamlega gift Rafni Gíslasyni, húsasmiði. Við eigum 4 börn og 7 barnabörn og einn hund. 

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...palli
  • ...jol2008_030
  • ...jol2008_016
  • ...jol2008_012
  • Sumar2008 068

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 5658

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband