Til hamingju!

Ávaxtabíllinn er vel af verðlaununum kominn. Það frumkvöðlastarf sem þeir hafa unnið er athyglisvert. Það hefur verið mér og svo mörgum öðrum nauðsynlegt að nálgast heilsu sinnar vegna hollrar og fitusnauðrar fæðu, ferskri og án aukaefna. Ég er ein af þeim mörgu sem hafa notið framleiðslu þeirra og er hún ósvikin, ómenguð og fersk. Það að geta komið við á bensínafgreiðslustöð á leið til vinnu og keypt brakandi ferska ávexti niðurskorna og flotta til neyslu, brauð með fersku nýju grænmeti og alls kyns hollustu er frábært! Tími fitumikils skyndibita og "olíumengaðra" fæðu er liðinn. Það er líka æðislegt að getað pantað flottan ávaxtabakka og borið fram á fundum og námskeiðum. Takk fyrir mig.
mbl.is Ávaxtabíllinn hlýtur Fjöreggið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björg Árnadóttir

Alveg sammála! Á mínum fyrri vinnustað fengum við sendingu frá Ávaxtabílnum einu sinni í viku og það var augljóst hvað sjoppuferðum og slíku fækkaði. Frábær þjónusta.

Nú er komin hálkutíð svo farðu endilega varlega, varlega, varlega á leiðinni í bæinn!!

Björg Árnadóttir, 16.10.2008 kl. 17:11

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sniðugt, ég hef ekki heyrt um Ávadtabílinn, ætli það sé eitthvað sambærilegt hér ?  Annars er í dag miklu meira um grænmetissnakk, en góðu gömlu kartöflurnar.  Og maður saknar þeirra ekkert.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.10.2008 kl. 11:15

3 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Takk allar fyrir kommentin og kveðjurnar.  Ég held, Ásthildur að enginn sé með svona starfsemi annarsstaðar eins og Ávaxtabíllinn er með. Þeir byrjuðu á því á sínum tíma að heimsenda ávaxtakörfur og nýbökuð brauð heim til fólks sem hafði þá pantað áður á netinu. Þeir voru líka með pastarétti og fleira mjög gott. Þeir breyttu starfsemi sinni og keyra með ávaxtabakka til fyrirtækja sem panta og hefur m.a. Mímir sem ég starfa hjá pantað ávaxtabakka fyrir námskeiðslit og fundi. Það eru þeir girnilegustu bakkar sem hægt er að hugsa sér. Flott skornir ávextir, brakandi ferskir á fallegum bökkum og skreyttir listilega. Nú hafa þeir verið með framleiðslu á fersku ávaxtasalati í boxum á bensíafgreiðslum og víðar. Það eru sömu brakandi fersku gæðin og keypti ég oft slík box áður en ég fór til vinnu seint í sumar. Var mjög gott í hitanum. Einnig eru þeir með heilsusamlokur og brauðsneiðar með því ferskarsta grænmeti sem ég hef kynnst og nánast ekkert af sullandi feitum sósum. Allt mjög bragðgott og girnilegt. Engin aukaefni eða neitt sem ekki er heilsusamlegt. Einnig hafa þeir verið með nokkurskonar "búst" sem hægt hefur verið að kaupa á þessum stöðum og ég veit um marga sem kaupa það sem morgunverð eftir að vera búnir að fara í sund eða ræktina fyrir vinnu. Það minnir dálítið á skyrbúst. Mjög hollt. Þetta er svona eiginlega það sem ég veit um ávaxtabílinn og ég mæli með heilsubitanum frá þeim. Sem betur fer hefur þetta breyst með snakkið. Hollari og betri biti kominn í staðinn. Knús og kveðjur á ykkur allar.

Sigurlaug B. Gröndal, 21.10.2008 kl. 21:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurlaug B. Gröndal
Sigurlaug B. Gröndal

Hef einlægan áhuga á öllu sem snertir manneskjuna,lífið og tilveruna. Ég er verkefnastjóri hjá Mími-símenntun ehf. Er hamingjusamlega gift Rafni Gíslasyni, húsasmiði. Við eigum 4 börn og 7 barnabörn og einn hund. 

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...palli
  • ...jol2008_030
  • ...jol2008_016
  • ...jol2008_012
  • Sumar2008 068

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband