22.6.2007 | 13:58
Haggis er málið!
Skotlandsferðin tókst mjög vel. Við fengum óskaveður, sól og sumarhita. Nokkrir sólbrunnu og útsteyptir í flugnabiti. Bærinn sem við vorum í, Dunfermline er vel falið leyndarmál. Hann er um 15 mílum frá Edinborg og þar búa um 60 þús. manns. Hann er fullur af sögu, gömlum byggingum og fallegum garði, kirkjum og fleira. Þar hefur hraði stórborga ekki náð tökum sínum á íbúum. Þar er gott að versla, góðir veitingastaðir, einstaklega gott og glatt fólk. Söngurinn í þessari ævagömlu klausturkirkju tókst vel. Kórinn er ekki vanur að syngja í svo stóru rými en hljómburðurinn var mjög góður og var æðislega gaman að syngja þarna. Var okkur einstaklega vel tekið. Messuformið er með nokkrum öðrum hætti og gerðum við góða tilraun til að syngja á enskri tungu sálmana með söfnuðinum, sem tókst misjafnlega. Farið var í ferð um hálendið, skoðuð whiskeyverksmiðja m. meiru og farið í kastalaskoðun. Að sjálfsögðu var komið við í Marks og spencer, Slaters og fleiri góðum búðum á leiðinni, bæði í Glasgow og Edinborg. Skotar er afskaplega jákvæðir og skemmtilegir og gaman að sækja þá heim. Að sjálfsögðu var smakkað á haggis (skoska slátrinu), sem var djúpsteikt með whiskeysósu. Við ættum að nýta okkur þetta og ota slátrinu okkar að ferðamönnum og sem daglegum skyndibita. Haggis er hægt að kaupa daglega á öllum venjulegum skyndibitastöðum í Skotlandi og eru heimamenn að snæða það sem hádegismat í matarhlém sínum sem og kvöldmat. Það mætti kannski taka þann sið hér. Krydda það aðeins meira og svo djúpsteikja og kannski búa til Egils-malt sósu eða brennivínssósu með. Skora á einhvern kokkinn að prófa sig áfram með þetta.
Bloggvinir
-
arh
-
asthildurcesil
-
austurlandaegill
-
axelthor
-
baenamaer
-
baldurkr
-
baldvinj
-
barattan
-
bene
-
birnamjoll
-
bitill
-
bjarnihardar
-
bjorgarna
-
bokakaffid
-
brim
-
credo
-
doggpals
-
drifakristjans
-
dullari
-
ea
-
esv
-
fjola
-
fullvalda
-
gattin
-
gudnim
-
hafstein
-
hector
-
heg
-
heimssyn
-
hildurhelgas
-
hjolagarpur
-
hross
-
ingibjorgstefans
-
jensgud
-
jonaa
-
jonvalurjensson
-
juliusvalsson
-
kht
-
kjarninn
-
kokkurinn
-
konukind
-
krist
-
larahanna
-
leitandinn
-
logos
-
lucas
-
malacai
-
manzana
-
oddgeire
-
omarragnarsson
-
overmaster
-
palmig
-
photo
-
prakkarinn
-
rafng
-
ringarinn
-
saedis
-
siggagudna
-
slartibartfast
-
steinalind
-
steingerdur
-
thjodarheidur
-
thorha
-
torfusamtokin
-
toshiki
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vest1
-
vglilja
-
vilhelmina
-
zeriaph
-
thorhallurheimisson
Eldri færslur
- Apríl 2014
- September 2012
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Apríl 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.4.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég held að þú ættir bara sjálf að framkvæmda þessa frábæru viðskiptahugmynd
- það má auðvita alltaf fá einhverja afbragðskokka til að hjálpa sér til að þróa hana!
Valgerður Halldórsdóttir, 22.6.2007 kl. 21:14
Það er aldrei að vita hvað manni dettur í hug. Ég á einn ágætan skólabróður Magga sem er frábær kokkur og það væri kannski ráð að athuga hvað hann gæti töfrað fram úr erminni með þetta. Allt er betra en álver, ekki satt! Það eru miljón hugmyndir til í þessum efnum og alltaf velja þeir þær verstu!
Sigurlaug B. Gröndal, 22.6.2007 kl. 22:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.