15.4.2007 | 00:07
Ótrúlegur dónaskapur og niðurlæging
Ég get ekki á setið á mér að skrifa nokkur orð um atburð sem ég varð vitni af seint á föstudaginn inni í Bónus í Holtagörðum. Ég var komin að kassa og búin að týna allar vörurnar á færibandið. Meðan ég beið eftir að röðin kæmi að mér hafði ég fylgst með næstu kössum, þar sem komið var að lokum og starfsmenn að ljúka störfum. Ég fylgdist meðal annars með ungum pilti , greinilega mjög samviskusömum og duglegum vinna á næsta kassa. Pilturinn virtist vera innflytjandi, afskaplega snyrtilegur og kurteis. Ung kona, hörkudugleg en greinilega orðin þreytt eftir daginn var við kassan sem ég var við. Þegar hún var langt komin með að skanna inn vörurnar mínar heyrist frá næsta kassa hvass og frekjulegur tónn í konu sem var greinilega í meira lagi pirruð setja ofan í við þennan unga pilt sem vann á kassanum. Hún ætlaði víst að greiða vörurnar í tvennu lagi. Hvort hún hafi ekki útskýrt það nægilega veit ég ekki en með æsingi og frekju hreytti hún í hann "TALAÐU ÍSLENSKU"!. Við stoppuðum báðar ég og unga konan á kassanum og litum á hvor á aðra. Ég hafði ekki heyrt annað en að þessi piltur hafi talað bara ágætist íslensku en dónaskapurinn og niðurlægingin sem hún sýndi piltinum var fyrir neðan allar hellur. Hvers konar framkoma er þetta eiginilega! Ég vona að svona hagi fólk sér almennt ekki, hvorki gagnvart innflytjendum né fólki bara almennt. Fólk í afgreiðslustörfum er oft stuðpúðar fyrir allskyns vanlíðan fólks og þreytu. VR lét gera mjög góðar auglýsingar þessu varðandi og vona ég að fólk muni eftir þeim og láti hvorki þreytu, pirring eða tímaleysi bitna á því fólki sem er að þjónusta það. Góða helgi.
Bloggvinir
- arh
- asthildurcesil
- austurlandaegill
- axelthor
- baenamaer
- baldurkr
- baldvinj
- barattan
- bene
- birnamjoll
- bitill
- bjarnihardar
- bjorgarna
- bokakaffid
- brim
- credo
- doggpals
- drifakristjans
- dullari
- ea
- esv
- fjola
- fullvalda
- gattin
- gudnim
- hafstein
- hector
- heg
- heimssyn
- hildurhelgas
- hjolagarpur
- hross
- ingibjorgstefans
- jensgud
- jonaa
- jonvalurjensson
- juliusvalsson
- kht
- kjarninn
- kokkurinn
- konukind
- krist
- larahanna
- leitandinn
- logos
- lucas
- malacai
- manzana
- oddgeire
- omarragnarsson
- overmaster
- palmig
- photo
- prakkarinn
- rafng
- ringarinn
- saedis
- siggagudna
- slartibartfast
- steinalind
- steingerdur
- thjodarheidur
- thorha
- torfusamtokin
- toshiki
- valgerdurhalldorsdottir
- vest1
- vglilja
- vilhelmina
- zeriaph
- thorhallurheimisson
Eldri færslur
- Apríl 2014
- September 2012
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Apríl 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er bara með öllu ólíðandi að fólk láti skap sitt bitna á afgreiðslufólki almennt. Þvílíkur dónaskapur!
Svona fólk ætti að drífa sig upp á heiði og öskra pínu til þess að losa sig við uppsafnaða innri reiði.
Valgerður G., 18.4.2007 kl. 13:33
Sagði einhver eitthvað við þessa konu eða komst hún bara upp með dónaskapinn átölulaust?
Ingibjörg Stefánsdóttir, 18.4.2007 kl. 14:09
Gott hjá þér að skrifa um þetta!
Flestir hefðu nú bara horft í hina áttina!
Baráttukveðjur:
Ásgeir Rúnar Helgason, 20.4.2007 kl. 19:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.