18.11.2008 | 23:06
Tommað á móti vindi.
Ég var að koma frá Egilsstöðum í kvöld. Var að kenna þar síðustu tvo daga. Ég hef nú ekki lent í því fyrr að vera 1 og 1/2 tíma á leiðinni sem annars er 1 klst. flug. Mótvindur var gríðarlegur. Vélin andskotaðist við í flugtaki, sem betur fer ekki lengi. Ferðin gekk vel en við lentum á gömlu NA/SV brautinni sem er ekki notuð nema í einstaka tilfellum. Þetta er í fyrsta skipti sem ég lendi á þeirri braut og er ég búin að þvælast um landið í flugi s.l. 12 mánuði og ríflega það. Það var fallegt á Egilsstöðum eins og alltaf. Mikið stóð til þar fyrir utan námskeiðið en þarna voru nokkrir pólitíkusar að funda. Valgerður Sverrisdóttir, Kristján Möller, Kristján Þór, Þuríður Backman og fleiri. Einnig var VG með fund á Hótel Héraði með Steingrími J. Þar sem ég hef misst af svo mörgum fundum sá ég þarna gullið tækifæri að fara á fundinn. Þetta var fjölmennur fundur og fróðlegt var að heyra í heimamönnum um hvernig ástandið í þjóðfélaginu snertir byggðarlagið. Áður en fundurinn hófst heimsótti ég mína eðalfrænku sem er hljóðmaður hjá RUV, Heiði Ósk. Hún var að klippa í óða önn frétt sem átti að sendast í hvelli suður og var síðan að undirbúa útsendingu á hluta Kastljóssins ásamt Hjalta en Steingrímur og Valgerður voru í þættinum. Merkilegt hvað hægt er að framkvæma í ekki stærra húsnæði og á mettíma og ég dáðist að henni frænku minni fyrir snilli hennar á græjunum. Hún er bara flottust! Ég verð að segja það. Góðar stundir.
Bloggvinir
- arh
- asthildurcesil
- austurlandaegill
- axelthor
- baenamaer
- baldurkr
- baldvinj
- barattan
- bene
- birnamjoll
- bitill
- bjarnihardar
- bjorgarna
- bokakaffid
- brim
- credo
- doggpals
- drifakristjans
- dullari
- ea
- esv
- fjola
- fullvalda
- gattin
- gudnim
- hafstein
- hector
- heg
- heimssyn
- hildurhelgas
- hjolagarpur
- hross
- ingibjorgstefans
- jensgud
- jonaa
- jonvalurjensson
- juliusvalsson
- kht
- kjarninn
- kokkurinn
- konukind
- krist
- larahanna
- leitandinn
- logos
- lucas
- malacai
- manzana
- oddgeire
- omarragnarsson
- overmaster
- palmig
- photo
- prakkarinn
- rafng
- ringarinn
- saedis
- siggagudna
- slartibartfast
- steinalind
- steingerdur
- thjodarheidur
- thorha
- torfusamtokin
- toshiki
- valgerdurhalldorsdottir
- vest1
- vglilja
- vilhelmina
- zeriaph
- thorhallurheimisson
Eldri færslur
- Apríl 2014
- September 2012
- Nóvember 2011
- Október 2011
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Apríl 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ekki skemmilegt flug þetta! Já, það er margt hægt í litlu plássi þegar viljinn (og hæfileikarnir!) eru fyrir hendi
Björg Árnadóttir, 19.11.2008 kl. 10:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.