Á flandri um landið og villtist!

Í vikunni sem leið var ég stödd á Egilsstöðum, þar sem ég átti að kenna á námskeiði að  Kirkjumiðstöðinni inni að Eiðum. Ekki hef ég áður verið þar á ferð um hávetur. Þennan fimmtudagsmorgunn átti ég að vera mætt til kennslu kl. 9:00. Ég hugðist aka sem leið lá í gegnum bæinn áleiðis að afleggjaranum til Seyðisfjarðar og þaðan inn að  Eiðum. Úti var dimmt, ísþoka um allt og snjómugga. Ég var á bílaleigubíl sem ég þekkti ekki og ók því mjög varlega í fljúgandi hálkunni. Nú var ég komin ofan byggðar en lenti í lokaðri götu og fann ekki rétta leið. Náði ég að stöðva þar einn ágætis bílstjóra á vöruflutningabíl og bað hann að segja mér til vegar inn að Eiðum. Jú, jú, ekki málið. Farðu að næstu gatnamótum til hægri og svo áfram, þá kemurðu að stórum "T" gatnamótum og þá ferðu til vinstri. Ég gegni því og ek af stað. Jú, þarna voru gatnamótin hin fyrstu, svo komu stóru "T" gatnamótin og ég beygði til vinstri. Ég ók sem leið lá í ísþokunni og myrkrinu. Áfram ók ég og enn jókst snjókoma og færðin þyngdist. Leiðin lá aðeins upp í móti. Ekki leist mér orðið á blikuna. Ég var búin að aka (reyndar mjög varlega) í um það bil 20 mínútur þegar ég sé glitta í vegamót og á skilti stóð "Mjóifjörður". Neeeii, þetta gat nú ekki verið. Ég hélt aðeins áfram, kom að björgunarskýli. Nei nú er ég á kolrangri leið. Ég ók áfram til að finna hentugan stað til að snúa við. Það tók dálítinn tíma, þar sem snjór var á vegi, hálka, ísþoka og snjómugga. Betra að vera á öruggum stað. Ég sneri við og ók til baka. Þegar ég kom að fyrrnefndum "T" gatnamótum var skilti sem benti í áttina sem ég var að koma úr, þar stóð "Reyðafjörður!!!! Ég hafði verið komin langleiðina til Reyðarfjarðar. -Til hægri var skilti og á því stóð "Seyðisfjörður",þaðan hafði ég komið og blessaði bílstjórinn eitthvað misskilið þetta. Ég branaði því í hasti áfram veginn og komst loksins klakklaust að Kirkjumiðstöðinni að Eiðum, en var næstum 1/2 klst. of sein. Þetta var samt eitt skemmtilegasta námskeið sem ég hef kennt á, frábær hópur og Héraðsbúar höfðingjar heim að sækja. Kristjana í eldhúsinu fór á kostum í matargerð fyrir mannskapinn og Sr. Jóhanna tók vel á móti okkur. Kærar kveðjur austur!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiríkur Harðarson

Vörubílstjórinn hefur greinilega verið jafn áttavilltur og þú. Annars var nú mjög gott að þetta blessaðist allt að lokum, líka að fyrirlesturinn var svona fínn.

Eiríkur Harðarson, 16.1.2008 kl. 23:42

2 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Þetta var merkileg reynsla. Mórallinn í þessari sögu er að maður á aldrei að spyrja karlmenn til vegar.

Steingerður Steinarsdóttir, 17.1.2008 kl. 10:16

3 Smámynd: Björg Árnadóttir

hehehehe... ég held að þetta tengist austurlandi sérstaklega. Ég ætlaði nefnilega einu sinni í skottúr frá Egilsstöðum til Vopnafjarðar og tókst það..... með viðkomu á Borgarfirði Eystra!!  Ég var reyndar búin að átta mig á að ég væri á rangri leið áður en ég kom þangað en ákvað að fyrst ég væri komin svona langt í tómri vitleysu að þá væri lágmark að skoða þann fallega stað. Skemmtilegur skreppur en mun lengri en til stóð!

Gott að þetta gekk upp hjá þér.

Björg Árnadóttir, 17.1.2008 kl. 23:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurlaug B. Gröndal
Sigurlaug B. Gröndal

Hef einlægan áhuga á öllu sem snertir manneskjuna,lífið og tilveruna. Ég er verkefnastjóri hjá Mími-símenntun ehf. Er hamingjusamlega gift Rafni Gíslasyni, húsasmiði. Við eigum 4 börn og 7 barnabörn og einn hund. 

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...palli
  • ...jol2008_030
  • ...jol2008_016
  • ...jol2008_012
  • Sumar2008 068

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 5659

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband