Meiri harka á vinnumarkaði - bein og óbein áhrif

Árið 1993-1995 var mikið atvinnuleysi hér á landi. Fyrir þann tíma voru margir sem voru með skerta starfsorku í hlutastörfum og störfum sem nánast má segja að hafi verið "eyrnamerkt" þeim hópum hjá bæði ríki og borg. Meira var um hlutastörf á þessum tíma. Á t.d. leikskólum tíðkaðist það í meira mæli að starfsmenn ynnu hálfan daginn eða hluta úr degi, þannig var það einnig í fleiri atvinnugreinum. Hjá borginni var þó nokkuð af störfum sem voru nánast "eyrnamerkt" þeim sem ekki höfðu fulla starfsgetu, hvort sem um var að ræða andlega eða líkamlega, svo sem hjá Gatnamálastofu (þ.e. malbikun, hellulagnir, aðstoðarstörf hverskonar) einnig í eldhúsum borgarinnar og í garðyrkju. Í dag eru þessi verk boðin út. Malbikunarstöðin er einkarekin, viðhald fer í útboð svo ekki eru þessi störf lengur til staðar. Eldhúsin eru stærri og færri og meira vélvædd. Vinnumarkaðurinn er harðari, gerir kröfur um fullt starf og gott betur. Það er ekki pláss fyrir þá sem eru ekki með fulla starfsgetu og hvað gerist þá? Þeir fara á fulla örorku og heilsa þeirra oft á tíðum versnar. Það að vera ekki þátttakandi í hinu daglega amstri mannlífsins og eiga fastan punkt dags daglega dregur  úr lífsgæðum fólks.  Það er einnig fylgni á milli aukins atvinnuleysis og auknum  greiðslum úr sjúkrasjóðum stéttarfélaganna. Atvinnuleysi hefur víðtæk áhrif á heilsu manna og iðulega til hins verra.  Undirstaða sjálfsvirðingar og sjálfstraust er að hafa vinnu og geta séð fyrir sér og sínum. Þegar vinnan fer og einstaklingi er ekki gefið tækifæri til að taka þátt í hringiðunni og eiga sér fastan stað í tilverunni með vinnufélögum og að vera virkur þá liggur leiðin niður á við. Í dag er einfaldlega ekki pláss fyrir fólk með skerta starfsgetu á vinnumarkaðnum, því miður. Ég vona að hér verði viðhorfsbreyting og allir fái pláss. Því var sorglegt að tekin hafi verið ákvörðun um að loka Bergiðjunni. Það mætti frekar fjölga síkum úrræðum fyrir þá sem eru að feta sig út á vinnumarkaðinn aftur.
mbl.is Nýskráning öryrkja fylgir sveiflum á atvinnuleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björg Árnadóttir

Góður pistill. Mig minnir að áður hafi verið áætlað að loka Bergiðjunni en þá var því bjargað fyrir horn. Vonum að það takist líka núna. Snilldar vinnustofa með góðar vörur.

Björg Árnadóttir, 10.3.2008 kl. 22:21

2 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Frábært hjá þér að vekja athygli á þessu. Það er nauðsynlegt fyrir öryrkja að fá að leggja eitthvað að mörkum til samfélagsins. Það gefur þeim gildi í augum sjálfs sín og aukið sjálfstraust.

Steingerður Steinarsdóttir, 11.3.2008 kl. 09:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurlaug B. Gröndal
Sigurlaug B. Gröndal

Hef einlægan áhuga á öllu sem snertir manneskjuna,lífið og tilveruna. Ég er verkefnastjóri hjá Mími-símenntun ehf. Er hamingjusamlega gift Rafni Gíslasyni, húsasmiði. Við eigum 4 börn og 7 barnabörn og einn hund. 

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...palli
  • ...jol2008_030
  • ...jol2008_016
  • ...jol2008_012
  • Sumar2008 068

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 5682

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband