Færsluflokkur: Bloggar

Fáránlegur skattur.

Ég er ein af þeim sem hef ekið á nagladekkjum nánast allan minn ökuferil og hefur það bjargað mér margoft. Ég bjó í ein 20 ár í Seljahverfinu og þar sem og í efri byggðum er mjög oft ísing þó autt sé niður í bæ. Glæran sem þar oft myndast hefur gert mörgum sem ekki eru á nagladekkjum marga skráveifuna. Þarna eru brekkur og hver man ekki eftir vandræðunum oft í hálku á morgnana og á kvöldin á Seljabrautinni og Breiðholtsbrautinni! Fyrir 15 árum þegar þó flestir voru á nagladekkjum var ekki kvartað yfir svona mikilli svifryksmengun. Reyndar voru bílar færri þá en þá voru þungaflutningar á vörum og jarðefnum ekki eins mikill á götum borgarinnar sem og á þjóðvegunum. Atvinnubílstjóri sem ég heyrði viðtal við fyrir um 2 árum sagði af eigin reynslu að 30 tonna flutningabíll sem æki á malbiki sliti því á við einhverja hundruð eða þúsundir fólksbíla. Er ekki þarna verið að hengja bakara fyrir smið rétt einu sinni! Góðar stundir.
mbl.is Leggjast gegn nagladekkjaskatti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Bændamús" - hafið þið prófað hana?

Ég kýs að kalla þetta "bændamús", jah, hvað ætli það svo sem sé? Jú, flestum þykir mjög góð alvöru kartöflumús með slátri og fleiri góðum íslenskum mat. Svo er ómissandi að hafa rófustöppuna líka. Svo eru okkar góðu gulrætur alveg hreint dásamlegar nýsoðnar með matnum. Hvað skyldi þá "bændamús" vera á mínum bæ? Jú, afhýðið nokkrar kartöflur og skerið í tvennt, afhýðið 1 gulrófu eða svo og skerið í bita (álíka stóra og kartöflurnar eru) og svo 3-4 stórar gulrætur og bútið niður í þykkar sneiðar. Setjið vatn í pott og setjið örlítið salt í pottinn og látið suðuna koma upp. Setjið grænmetið í pottinn og sjóðið í ca. 20-25 mínútur eða þar til það er orðið vel mjúkt. Látið vatnið renna af og setjið í skál (gjarnan hrærivélaskál). Setjið örlítið salt, sykur (má vera líka gervisæta), dálitla klípu af létt og laggott (þeir sem það vilja geta notað smjör). Hrærið vel saman í hrærivél, bætið volgri mjólk út í og þeytið aðeins. Þetta er ótrúlega gott með slátri, saltkjöti, meira að segja soðinni ýsu, reyktum fiski og fleira og fleira. Prófið bara! Góðar stundir.

Vangaveltur um myntbreytingu.

Ég hef mikið verið að velta því fyrir mér í kringum alla þá umræðu sem átt hefur sér stað um krónuna okkar sem talin er af mörgum, galónýtur gjaldmiðill svo ekki sé meira sagt. Háar raddir eru um að ganga í ESB og taka upp evruna. Sumir hafa jafnvel verið svo djarfir að tala um að taka upp dollarann! Guð forði okkur frá þeirri vitleysu. Erum við ekki nægileg amerísk fyrir? Það er ljóst að ekki verður evran hingað komin í stað krónunnar nema að ganga í ESB og því er ég alfarið á móti. Okkar smáa þjóð verður gleypt þar með öllu, þá á ég við orkulindum, nýtingu sjávar og miklu fleira sem ég tel að við töpum yfirráðum okkar yfir. Nú hafa Danir og Svíar verið að ýja að því að taka jafnvel upp evruna. Það er víst farið að halla eitthvað á efnahaginn á fleiri stöðum.  Hvað með norræna krónu? Væri það kostur að Noregur, Svíþjóð, Danmörk, Ísland og Færeyjar tækju upp sameiginlegan gjaldmiðil þ.e. NORRÆNA KRÓNU!  Margt vitlausara hefur verið gert í henni versu! Góðar stundir.

Stórkostlegur kosningasigur-upphaf aldar raunsæisins er komið!

Ég óska Bandaríkjamönnum til hamingju með nýja forsetann og reyndar öllum heiminum með þessi úrslit. Það er mín trú að þessi úrslit eigi eftir að marka spor í heimssöguna og boða miklar breytingar allsstaðar. Sérstaklega þó hjá Bandaríkjamönnum sjálfum.  Hún mamma segir oft svo merkilega og skemmtilega frá. Hún pælir mikið í pólitík, fylgist með erlendum fréttum um allan heim. Hún segir að öld raunsæisins sé að renna upp. Það hafa verið ísöld, bronsöld, steinöld, víkingaöld,  bylting kommúnisma, frjálshyggjubylting og fleira. Allt þetta hefur liðið undir lok. Öfgar eru aldrei af hinu góða. Nú erum við búin að skella á rassinn með frjálshyggjuna (sem fór hér út í hreina græðgi) og komin til raunveruleikans. Þjóðin er að vakna af draum sem átti að vera svo góður og hið eina sem var rétt og gott. Þessu má líkja við að þjóðin hafi verið slegin utan undir. Verst er að það eru svo margir sem áttu þennan kinnhest ekki skilið og skilja ekki hvers vegna þeir hafa fengin hann.  Efnahagur margra þjóða stefnir niður á við. Tími græðginnar er liðinn eða ég vona það. Nú tekur við tími raunsæis, jafnvægis, mannúðar sem gefur öllum pláss til að vera til og lifa mannsæmandi lífi. Ég er kannski svona hrikalega bjartsýn eða óraunsæ, en þetta er mín tilfinning og oft hefur hún mamma verið sannspá. Lifið heil.

Vetrarríkið við Mývatn.

Sem stendur er ég stödd norður við Mývatn, nánar til tekið í Reynihlíð. Ég koma hingað seint síðdegis í dag frá Akureyri eftir 3ja daga kennslu þar. Að aka hingað með vatninu var hreint ótrúlegt. Hér mældist á hitamæli í bílnum 16 stiga frost. Hér er snjór yfir öllu og héla á trjám. Hér var skein gul-bleik kvöldsólin og litaði fjallstindana með bleikum lit. Ísþoka var víða yfir ám og yfir vatninu. Birtan var ævintýraleg og skuggarnir í hrauninu sem mynduðust voru ótrúlegir. Ég ók hægt og rólega til að njóta þessarar birtu sem stoppaði þó svo stutt við, þar sem myrkrið kemur svo snöggt á þessum árstíma. Því miður tók ég ekki myndavélina með mér. Ég er ekki einu sinni viss um að hún hefði náð þessari dýrð sem ég varð vitni af. Landið okkar er bæði fagurt og frítt. Förum vel með það.

Þarna eru menn með viti!

Þarna vita menn hvernig á að bera sig að, halda utan um hlutina og framkvæma. Þeir ætti kannski í Vestmannaeyjum að halda námskeið í þessu! Flott hjá ykkur!
mbl.is Ekki slegið af í Vestmannaeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju!

Ávaxtabíllinn er vel af verðlaununum kominn. Það frumkvöðlastarf sem þeir hafa unnið er athyglisvert. Það hefur verið mér og svo mörgum öðrum nauðsynlegt að nálgast heilsu sinnar vegna hollrar og fitusnauðrar fæðu, ferskri og án aukaefna. Ég er ein af þeim mörgu sem hafa notið framleiðslu þeirra og er hún ósvikin, ómenguð og fersk. Það að geta komið við á bensínafgreiðslustöð á leið til vinnu og keypt brakandi ferska ávexti niðurskorna og flotta til neyslu, brauð með fersku nýju grænmeti og alls kyns hollustu er frábært! Tími fitumikils skyndibita og "olíumengaðra" fæðu er liðinn. Það er líka æðislegt að getað pantað flottan ávaxtabakka og borið fram á fundum og námskeiðum. Takk fyrir mig.
mbl.is Ávaxtabíllinn hlýtur Fjöreggið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefur víðtækari áhrif en fólk gerir sér grein fyrir.

  1. Deyr fé,

deyja frændur,

deyr sjálfur ið sama.

En orðstír

deyr aldregi

hveim er sér góðan getur.

 

Orðspor okkar íslendinga er ekki upp á marga fiska í dag. Þjóðin hefur beðið hnekki, ekki bara í viðskiptalífinu heldur á miklu breiðari vettvangi. Siðfræðin hefur algerlega gleymst í þessum ólgusjó útrásar og græðgi. Það á eftir að taka þjóðina langan tíma að öðlast sömu virðingu og hún hafði fyrir þetta hrun. Nú liggur á að vinna rétt úr hlutunum. Það er stórmál þegar verið er að ýta mennignarviðburðum út af borðinu vegna vantrausts  sem annar vettvangur hefur skapað. Sinfóníuhljómsveit Íslands er búin að leggja óhemju vinnu við undirbúning þessarar ferðar. Orðspor hljómsveitarinnar hefur farið víða og þykir hún einstaklega góð á heimsmælikvarða. Þetta hefur  dregið dilk á eftir sér en ég vona í lengstu lög að fleiri listviðburðir og listamenn fái ekki svona skilaboð og afboðanir. 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Vilja ekki íslensku sinfóníuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fékk þennan hvatningapóst sendan sem gengur á netinu.........góð lesning

 

 

 Þetta kemur frá honum Júlla á Dalvík eins og svo margt annað gott. Ég tók mér það bessaleyfi að birta þetta svo fleiri gætu notið þessa kvæðis. Því miður tókst mér ekki að setja inn allar fallegu myndirnar sem fylgdu. Margir eru eflaust búnir að fá þetta sent í tölvupósti. Takk Júlli fyrir hvatninguna. 

 

         

 

VIÐ SOFNUÐUM Á VERÐINUM....

  

Nú vandi steðjar okkur að og virðist endalaus

velmegunin orðin slík að fjandinn sleppur laus

krepputalið allsstaðar að æra sérhvern mann

og klúðrið alveg skelfilegt í kringum óhroðann.

 

 

Dimmir skuggar dansa yfir sjokkeraðri þjóð

sem fyrir nokkrum dögum þótti snjöll og ráðagóð

 

útrásina miklu studdi hún svo trú og dygg

fjármál landsins virtust vera örugg öll og trygg

 

En hættan lá í leyni og við gleymdum okkur öll

við það að eyða peningum og virkja ár og fjöll

kaupa allt sem hugur girntist bæði hér og þar

kaupa merkjaverslanir já heilu keðjurnar.

 

Kaupa jeppa, kaupa hús og verða rík og flott

Kaupa höll með garðhýsi og kaupa heitan pott

Kaupa líf sem gæti virst svo fullkomið og smart

Kaupa álit annarra en njóta þess þó vart.

 

Verðbólgan að sliga allt en við svo rosa klár

Nastaq þetta, Össur hitt og Dow Jones algjört fár

Vildum sýna veröldinni þó við séum smá

við gætum reddað heiminum ef þannig stæði á.

 

Nú stoltið sært og dapurlegt og þjóðin öll í sorg

sársaukann og vonbrigðin má sjá í bæ og borg

Bakland það sem fólkið taldi tryggja efri ár

tekið verður upp í skuld, en skilur eftir sár.

 

Þó það sé þyngr´en tárum tak´ að sættast þetta við

tilfinningar splundraðar og dapurt ástandið

þá saman öflug getum verið, ákveðin og sterk

fámenn þjóð með styrk sem getur gert mörg kraftaverk.

 

Upp með ermar, upp með bros og allir saman nú

aldrei meigum gefast upp né glata okkar trú

knúsumst bara þéttingsfast og hefjumst handa við

að bæta það sem bæta má og efla mannlífið.

 BH 2008.

 

En...núna er dagurinn í dag íslenskur veruleiki...og  því skylda okkar fullorðnu að takast á við hann...með jákvæðni...bjartsýni og krafti...nýta orkuna sem við eigum..og byggja börnunum okkar og barnabörnum nýtt og betra þjóðfélag...breyta áherslunum...hlúa að og gefa hvert öðru tíma...njóta þess sem er...og hætta að hugsa um það sem við höfum ekki....

 

Við erum þjóð elds og ísa...hamfara og hremminga...baráttu og sigurvilja og við gefumst ALDREI upp....því við getum ALLT....

       

 

Knúsvikan mikla 13.-20 okt 2008

ÁSKORUN FRÁ JÚLLA Á DALLANUM:

 Ég held að það skipti mestu fyrir okkur að halda ró okkar og huga að því sem að skiptir máli mannfólkið sjálft. hÉR http://www.julli.is/knus.htm er að finna upplýsingar um Knúsvikuna miklu og ég skora á alla að taka þátt með einum eða öðrum hætti. Til þess að Knúsvikan verði að veruleika bið ég alla að segja frá henni, breiða út knúsboðskapinn og taka þátt með því að knúsa. Kíkið á http://www.julli.is/knus.htm og hefjumst síðan handa. Áfram Ísland!!! 


Ég skora á alla að vera með...knúsast endalaust og hjálpast að við að byggja upp nýtt og betra líf...saman.... 


MUNA: "Þú getur valið hvort þú gefst upp þegar eitthvað fer úrskeiðis, eða nýtt þér ófarirnar og breytt þeim til hins betra. Staldraðu við, horfðu á alla demantana sem glitra allt í kringum þig. Börnin þín, makann, foreldra, vini, horfðu á trén svo falleg í haustlitunum, horfðu á allt þetta fallega í umhverfinu sem umlykur þig hvern dag. Sama hvernig ástandið er í þjóðfélaginu, þá eru þetta verðmætin sem skipta þig máli. Hugsaðu um það."

BROS OG KNÚÚÚS...Í HVERT HÚS!!!

 


Ábyggilega vel meint en...........

Ég var að hlusta í morgun eins og ég geri hvern morgun á leið minni til vinnu á morgunútvarp Rásar 2. Þar voru við hljóðnemann Hrafnhildur og Guðrún Gunnarsdóttir.  Í lok þáttarins rétt fyrir kl. 9.00 þegar þættinum er að ljúka þá hvöttu þær fólk til að njóta samvista, gera eitthvað saman, sem er mjög gott en jafnframt fólk til að sækja menningarviðburði svo sem að fara í leikhús, tónleika og að sækja kvikmyndahús. Þetta er allt mjög fallegar tillögur, en þannig er það nú að þetta er það fyrsta sem fólk hættir við þegar harðnar í ári.  Leikhúsferð foreldra með t.d. 1 barn eða ungling kostar að meðaltali ríflega 11 þúsund krónur. Bíóferð kostar fyrir jafnmarga kostar 3 þúsund krónur og tónleikar í það minnsta 4.500 krónur en miðaverð á tónleika er algengt kr. 1.500 á pr. einstakling.  Þetta er alltof dýr póstur fyrir fjölskyldu sem á í fjárhagserfiðleikum. Reyndar kom Hrafnhildur með í blá-lokin aðra tillögu að það væri að horfa saman  á mynd í sjónvarpinu og poppa. Það er nærri lagi. Einnig var önnur góð hugmynd og það var að fjölskyldur hittust og borðuðu saman. Ég og elsta systir mín gerðum það þegar börnin okkar voru lítil og við unnum aðeins hluta úr degi (n.b. sem var yndislegt) vorum reglulega með "rúnnstykkjadag". Þannig var að önnur hvor okkar bjó til súpu eða graut og hin mætti á staðin með sín börn og rúnnstykki eða nýtt brauð meðferðis og áttum við yndislega hádegisstund með krökkunum saman. Ekki er mikið mál að gera ódýra og góða súpu og baka brauðbollur. Taka síðan upp spil eða leiki og gera sér glaðan dag. Morgunútvarp Rásar 2 er frábær þáttur og hlusta ég hann á hverjum morgni á leið til vinnu. Alveg ómissandi en gæta þarf aðeins betur hvað sagt er.  Ég veit að þetta var vel meint en passaði ekki alveg. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Sigurlaug B. Gröndal
Sigurlaug B. Gröndal

Hef einlægan áhuga á öllu sem snertir manneskjuna,lífið og tilveruna. Ég er verkefnastjóri hjá Mími-símenntun ehf. Er hamingjusamlega gift Rafni Gíslasyni, húsasmiði. Við eigum 4 börn og 7 barnabörn og einn hund. 

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...palli
  • ...jol2008_030
  • ...jol2008_016
  • ...jol2008_012
  • Sumar2008 068

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband